Hér er ég, í englandi, að gera hluti sem ég er ekki allviss að séu þess virði að gera.
Það er hums og hams í minni (ætli ég hafi ekki verið að búa til e-ð nýtt með þessum orðum mínum) því þannig er nefnilega mál með (humm ég er mas ekki alveg viss um að ég kunni íslensku lengur) mááálum að enska er bara þræl erfitt mál og ég er barasta búin að vera í einn og hálfan mánuð að gera guð veit ekki hvað, annað en að læra e-ð sem er svo alltof auðvelt að það a ekki einu sinni eftir að hjálpa mér í e-ri advanced ensku....
Og núna í dag er ég í skrefinu fyrir neðan advenced (ég er núna bara í einkakensku, fancy!) og er als ekki sátt við mína, hérna er maður sko kominn í mikinn orðaforðaleik! úff! nú fer að reyna á kunnáttuna mans, Alison (kennarinn minn) er bara mjög ánægð með árangurinn minn í dag, segir að ég sé líklega akkúrat á réttu leveli þarna, og við skulum sjá með það hvernig þetta verður í lok vikunnar og vonandi verð ég tilbúin til að takast á við advanced, en hlutirnir líta ekki björtum augum að manni með það!
ætli það hafi ekki komið 30 ný orð í orðaforðakladdan í dag, og það get ég sko sagt ykkur að er svona 80% meira en á venjulegum degi. Þetta eru nú allt saman orð sem eru mjög flókin (svona svo þið farið nú ekki að halda að ég kunni núll og nix).
Í dag er ég óskaplega hrifin af svigum (það er afþví að þeir eru ekki notaðir mikið í ensku).
Ætli ég sé ekki öll að koma til? ;)
Skila kveðju heim, hafiði það gott!
I arrive home, ten'th of December!
Monday, 12 November 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Oh my god ertu komin með blogspot híhí - afhverju og hver eru orðin - getur þú ekki sett orðakladdann þinn á netið svo ég læri líka?
Post a Comment